zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Spegillinn
News & Politics
Icelandic
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Website
Episodes
Episodes
300
22 July 2026
Sýrland í dag
Nýjum forseta Sýrlands hefur tekist að ná og halda stjórn í landinu frá því að hann tók völdin í ársbyrjun 2025, eftir árangursríka sókn fjölda uppreisnarsveita undir hans forystu gegn stjórnarher Assads, þáverandi forseta. Hann hefur styrkt stöðu sína og tökin á valdatökunum síðan, frekar en hitt. En hvernig er lífið í Sýrlandi í dag?Spegillinn grennslaðist fyrir um það og rætt var við Magneu...
10 min
21 July 2026
Mannfall og mannekla í Úkraínustríðinu
Fjórum árum og fimm mánuðum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu hefur stríðið milli landanna breyst mikið. Drónar hafa að miklu leyti tekið við af hermönnum í fremstu víglínu, en það breytir því þó ekki að mannfall er enn mikið í báðum herjum. Þá hefur mannfall líka stóraukist í röðum almennra borgara, beggja vegna landamæranna. Ein afleiðing þessa er sú að æ erfiðara verður að manna herina og...
10 min
20 July 2026
Valdaskipti í Bretlandi
Húsbóndaskipti urðu í bústað breska forsætisráðherrans að Downingstræti 10 í Lundúnum í dag, þegar Keir Starmer flutti þaðan og Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri í Manchester og nýkjörinn þingmaður Verkamannaflokksins flutti þar inn. Bretar eru á meðal okkar næstu nágranna og helstu bandalags- og viðskiptaríkja, og því ekki úr vegi að forvitnast aðeins um þessi valdaskipti, ef það er rétta...
10 min
17 July 2026
Fiskveiðistefna ESB - annar hluti
Hvað felst í sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og er hægt að fá varanlegar undanþágur frá henni? Um þetta er tekist á í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB. Gunnar Þór Pétursson lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti segir engan vafa leika á því að mögulegt sé að semja um ýmsar undanþágur og sérlausnir, þótt það verði ekki...
9 min
16 July 2026
Sameiginleg sjávarútvegsstefna ESB
Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra - þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til...
10 min
15 July 2026
Bílabólgan mikla - bílar stækka og stækka
Bílar - ekki síst fólksbílar - hafa farið sístækkandi á alla kanta síðustu ár og áratugi, á sama tíma og bílunum fer fjölgandi - en meðalfjölskyldan minnkandi. Ný rannsókn á vegum regnhlífarsamtakanna Transport & Environment, sem beita sér fyrir umhverfis- og loftslagsvænni samgöngum, leiðir í ljós að frá aldamótum hafa fólksbílar - að meðaltali - lengst um 1,2 sentimetra á ári og...
10 min
14 July 2026
Stríð Bandaríkjanna og Írans II
Það sem átti að verða stríð til að steypa klerkastjórninni í Íran hefur að talsverðu leyti þróast út í stríð um þá mikilvægu siglingaleið, Hormússund, sem bæði ríki vilja stjórna allri umferð um og jafnvel rukka fyrir - eða ekki. Annar ásteytingarsteinn, sem nauðsynlegt er að ryðja úr vegi ef nokkur von á að vera um eitthvað í líkingu við varanlegan frið, er árásarstríð Ísraela á Líbanon. Íranar...
10 min
13 July 2026
Stríð Bandaríkjanna og Írans
Skipaumferð um Hormússund lagðist nánast af eftir að Íranar réðust á gámaskip sem siglt var um sundið á laugardag, undir kýpverskum fána. Íranar sögðu árásina á skipið hafa verið fyllilega lögmæta, þar sem stjórnendur þess hefðu ekki fylgt þeirri einu siglingaleið sem þeir heimila. Bandaríkjamenn árásina hins vegar svo gróft brot á gildandi vopnahléssamkomulagi, að þeir hófu árásir að nýju, af...
10 min
10 July 2026
10 min
09 July 2026
Þúsund manns krefjast skaðabóta af Samherja
Alþjóðasamtökin Transparency International afhentu héraðssaksóknara í dag skaðabótakröfur ríflega eitt þúsund Namibíumanna sem telja sig hafa orðið fyrir tjóni vegna meintra mútubrota og spillingar Samherja í Namibíu. Transparency samtökin hafa lengi hafi barist fyrir því að fórnarlömb spillingar í alþjóðaviðskiptum fái áheyrn og skaða sinn metinn. Samherjamálið hafi haft alvarlegar afleiðingar í...
14 min