zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
Episodes
300
21 July 2026
Uppbótartíminn - FH óstöðvandi og til skammar fyrir Val
Uppbótartíminn snýr aftur eftir stutt sumarfrí.Rætt er um umferðina sem var að klárast í Bestu deildinni en ótrúleg úrslit áttu sér stað á Hlíðarenda og í Kaplakrika í kvöld.Valur og Víkingur eru í fallsæti og það er væntanlega mikið fundað hjá þessum félögum þessa dagana. Á hinum enda töflunnar eru FH og Breiðablik í góðum gír, og þá sérstaklega FH-ingar sem eru óstöðvandi fyrir framan markið um...
21 July 2026
Kaffispjallið: Uppköst, húðflúr á hálsi og Casillas eða Neuer?
Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, mætti í annan þátt Kaffispjallsins. Farið var yfir hvað leiddi hann aftur í búrið á öðru ári í 2. flokki, skiptin frá Njarðvík til Keflavíkur og hvað virkilega gerðist þegar hann gisti hjá Stefáni Jóni Friðrikssyni.
20 July 2026
Innkastið - Breytingar í vændum á Akranesi?
Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnars stýrir ferðinni þessa vikuna og með honum eru Sæbjörn Steinke og Jói Skúli.Þórsarar voru fyrstir til að vinna Víkinga í deildinni, Evrópukeppnin er að trufla liðin, KA hélt ekki út manni fleiri og Skaginn í frjálsu falli.
20 July 2026
HM hringborðið - Leiðinlegasti úrslitaleikur sögunnar?
Síðasta HM hringborð mótsins. Spánverjar heimsmeistarar og Englendingar hirtu bronsið.Magnús Haukur Harðarson og Kári Snorrason fóru yfir úrslitaleikinn, bronsleikinn og veittu viðurkenningar.
17 July 2026
Útvarpsþátturinn - Glugginn galopinn og allir angar úti
Þátturinn er frumfluttur í hlaðvarpi í sérstakri sumarútgáfu. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir allt það helsta.Félagaskiptaglugginn er opinn, íslensk lið að spila um alla Evrópu, heil umferð framundan í Bestu og úrslitaleikur HM er framundan.
16 July 2026
HM hringborðið - Sá taktíski féll á prófinu
HM hringborðið á fimmtudegi. Ásgeir Frank Ásgeirsson var gestur í setti og fór yfir undanúrslitin ásamt Kára Snorrasyni. Thomas Tuchel fékk falleinkunn og Spánverjar sigldu þægilega í gegnum stjörnum prýtt lið Frakka.Sömuleiðis var hitað upp fyrir úrslitaleik Argentínu og Spánar sem og bronsleik Frakka og Englendinga.
15 July 2026
Harkið - Grenivíkur Grétar
13 July 2026
Innkastið - Vandræðaleg vegferð Vals
Innkastið eftir 14. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars.Dómaramistök léku Keflavík grátt, KA vann gríðarlega mikilvægan sigur en illa gengur hjá ÍA, staða Vals versnar eftir tap gegn FH, vonlaus frammistaða Þórs og KR lék sér að ÍBV. Fréttir, slúður og fabúleringar.Lengjudeildin og Evrópuleikir koma líka við sögu.
13 July 2026
HM hringborðið: Þarf að minnka skjátímann hjá Alf Inge
Halldór Snær Georgsson og Runólfur Trausti Þórhallsson voru gestir í HM hringborðinu að þessu sinni. Farið var yfir 8-liða úrslitin og rýnt í spilin fyrir æsispennandi undanúrslit.
13 July 2026
Árni Vill ræðir heimkomuna - „Þessi geðveiki virðist elta mig“
Árni Vilhjálmsson er genginn í raðir Stjörnunnar á frjálsri sölu frá Al-Taraji í Sádi-Arabíu.Kári Snorrason ræddi við Árna um skrefið heim ásamt því að fara yfir ferilinn úti í atvinnumennsku.Hann ræðir einnig upplifun sína af því að búa og spila í Sádi-Arabíu og Úkraínu á miklum óvissutímum.